Frændafundur 12

Íslandsnefnd Fróðskaparseturs Færeyja og Færeyjanefnd Háskóla Íslands  bjóða öllum sem áhuga hafa að taka þátt í ráðstefnunni Frændafundur 12, sem haldin verður í Þórshöfn í Færeyjum 29.-31. maí næstkomandi.

Fræðimenn, nemendur og aðrir geta sent tillögur að fyrirlestrum á ráðstefnunni en nánari upplýsingar um hana munu birtast á síðunni þessari síðu og einnig á þessari. Fyrirlesarar fá 30 mínútur til að halda fyrirlesturinn og svara spurningum að honum loknum. 

Ráðstefnan er þverfagleg og yfirskrift hennar er 

Sjálfbærni sem áttaviti – Hvernig birtist hugtakið sjálfbærni í ólíkum vísindagreinum?

Yfirskrift ráðstefnunnar er ætlað að fanga mikilvægt viðfangsefni sem margir fræðimenn í háskólasamfélaginu geta fundið snertiflöt við. Þar að auki geta væntanlegir fyrirlesarar boðið fram fyrirlestra um hvert það efni sem tengist löndunum tveimur, Íslandi og/eða Færeyjum. Gert er ráð fyrir að fyrirlestrum á ráðstefnunni verði raðað saman í málstofur um tiltekni efni eins og kostur er.  Fyrirlestrarnir verða haldnir á færeysku, íslensku, ensku eða norrænu meginlandsmáli (dönsku, norsku eða sænsku). 

Þeir sem hafa áhuga á að flytja fyrirlestur á Frændafundi 12 eru vinsamlegast beðnir um að senda útdrátt (ca. 250 orð) á netfangið zakarish@setur.fo (Zakaris Svabo Hansen) í síðasta lagi 1. mars. Svör við innsendum útdráttum eru væntanleg 10. mars.

Fyrir hönd Íslandsnefndar Fróðskaparseturs Færeyja

Zakaris Svabo Hansen

Fyrir hönd Færeyjanefndar Háskóla Íslands

Jóhannes Gísli Jónsson